þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Ísland - Danmörk (Miðasala hafin)

Hverjir hafa hug á að skella sér á landsleikinn? Nánari upplýsingar má sjá, hér að neðan:

Miðasala á landsleik Íslands og Danmerkur í Evrópukeppni landsliða er hafin á ksi.is og midi.is. Sala aðgöngumiða á landsleiki fer nú fram í nýju miðasölukerfi fyrir Laugardalsvöll frá midi.is



Kaupendum gefst kostur á að velja sér það sæti sem viðkomandi vilja sitja í.
Að kaupum loknum fær kaupandinn sendan e-miða (pdf skjal) í tölvupósti, sem hægt er að prenta út og nota sem aðgöngumiða á völlinn. Einnig er hægt að sækja miða í verslanir Skífunnar og BT, gegn framvísun skilríkja. Einnig er hægt að kaupa miða á leikinn í verslunum Skífunnar og BT.





Forsala til og með 5. sept.
Sæti í rauðu svæði kr. 4.500
Sæti í bláu svæði kr. 4.000

Sæti i grænu svæði kr. 1.500




Miðaverð á leikdag 6. sept.
Sæti í rauðu svæði kr. 5.000
Sæti í bláu svæði kr. 4.500
Sæti i grænu svæði kr. 2.000





Hægt er að kaupa miða með því að smella á valmyndina á forsíðu ksi.is, á midi.is eða með því að smella hér

Hverjir ætla?



Kv. Nonni


















5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Nonni við skellum okkur, ég er meira en til!

2:51 e.h., ágúst 22, 2006  
Blogger Jón Reynis bloggar said...

Ok, þá erum við allavegana þrjú sem ætlum að fara, (Ég, þú og Kristín). Runi, hvað með þig? Og Palli, ætlar þú að heyra í Viðari?

Endilega látið í ykkur heyra!!!

3:35 e.h., ágúst 22, 2006  
Blogger Jón Reynis bloggar said...

Það er orðið uppselt í rauða svæðið, og ekkert eftir á góðum stað í bláu stúkunni. Ég hugsa að besti díllinn sé á græna svæðinu,,, við þurfum að ákveða þetta fljótlega,,,

Kv. Nonni

8:21 f.h., ágúst 23, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu ég tala við Viddsterinn í dag, látum þetta gerast í hvelli!!

1:51 e.h., ágúst 23, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég fer ekki á einhvern djö... boltaleik :) Glæsileg mynd btw ;)

8:48 e.h., ágúst 26, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home