föstudagur, janúar 05, 2007

Gleðilegt nýtt ár

Sæl öll

Þetta verður stutt að þessu sinni. Ætla bara að óska ykkur gleðilegs nýs árs, með þökk fyrir það gamla. Þessi pistill, eða fyrirrennari hans átti að vera mun veglegri, en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum þá fraus allt apparatið, hjá þeim sem sjá um þetta.


Málið var að í gær ætlaði ég að henda inn færslu, og var búinn að sitja hérna fyrir framan tölvuna í tæpa þrjá tíma. Pistillinn um gamla árið, með myndum og allum pakkanum ;) Þegar ég var loksins búinn, og ætlaði að "publisha" efninu, þá lá serverinn niðri, helvíts, djöfulsins, anskotans.



Ég kveð með tveim myndum frá liðnu ári ;)


Stebbi, Palli og ég, í góðum fíling á Hressó eftir ærlega "vísindaferð" í Vífilfell.


Palli og Runi, eftir vísindaferðina í Framsókn, bara helvíti nettir ;)

Over and out, á nýju ári

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sæll Nonni minn og gleðilegt nýtt ár... hvað kemur til að þú skulir blogga... ég var við það að vera búin að gefast upp á því að bíða eftir bloggi hjá þér.. en allavega þá er frekar fúlt þegar allt dæmið frýs hjá manni, sérstaklega þegar maður er búinn að hafa eitthvað fyrir því að gera almennilegt blogg. En það var gott að heyra í þér og vonandi hittumst við sem fyrst á nýja árinu, með kveðju

11:24 f.h., janúar 08, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Flott mynd af þér í vísindaferðinni í Vífilfell...

10:15 e.h., janúar 08, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég veit ;) Þetta eru bara helvíti nettar myndir

11:04 f.h., janúar 09, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Djöfull er kallinn flottur á því

11:53 f.h., janúar 10, 2007  

Skrifa ummæli

<< Home