Mig langar sko ekkert að blogga!!!
Sæl öll
Eins og fyrirsögnin gefur til kynna, þá er ég algjörlega snauður af hugmyndum varðandi þetta blessaða blogg. Skólinn gengur vanaganginn, líkt og vinnan. Kláraði að taka lokapróf í Málstofu: Fjölmiðlar og stjórnmál, sem átti þó að vera próflaus áfangi,,, hmm,,, giskið þrisvar hver kenndi,,, Er umdeildur og byrjar á H... - Prófið gekk hins vegar mjög vel...
Annað sem mig langar að deila með ykkur er óþægileg lífsreynsla frá síðastliðinni helgi.
Innskot: „Þannig er nú mál með vexti að ég fór í fermingu til bróðir míns um síðustu helgi, nánar til tekið á sunnudeginum. Á heimleiðinni, eða um klukkan hálf sjö, eftir annars mjög góða veislu, var ég að keyra á Reykjanesbrautinni og nýkominn fram hjá afleggjaranum til Njarðvíkur. (Var ekki kominn á tvöföldunina), þegar ég sé skyndilega að það kemur bíll beint á móti mér, þ.e. kominn yfir á minn vegarhelming og stefnir beint framan á mig. Sá ekki hvort hann var að reyna framúrakstur við annan bíl sem kom á móti, en allavegana þá var þetta helvítis fíflaskapur, sem endaði með því að hann fór út á vegöxlina hægri megin, (séð frá mínu sjónarhorni), og þannig mættumst við, þ.e. ég var vinstra megin á hægri helmingi vegarins, eins og myndin sýnir og hann hægra megin, á þessum sama helmingi (séð frá mér). Hefði vegöxlin ekki verið, hefði hann, annaðhvort kastast út í móa, eða lent framan á mér,,, Var gjörsamlega í leiðslu eftir þetta, og tilhugsunin, hvað ef, og kaldur hrollur fylgdu í kjölfarið.“
Eru síðan einhverjir hissa á því að fólk sé að slasast og jafnvel deyja, þegar svona vitleysingar setjast undir stýri. (Myndin hér til hliðar tengist þessu ekki á nokkurn hátt).
~Bið að heilsa, og sendi kærar kveðjur til sjávar og sveita~

4 Comments:
Vá, gott að eiga góða verndarengla á svona stundu!!
Maður verður að lifa lífinu á meðan maður getur, ef það getur endað sisona.... djamm??? :-)
Þetta er ansi góð saga.. fær mann aðeins að spá í því hvort þessir kappar hafi fengið skírteinið sitt í cheerios pakka eða eitthvað... fólk er fífl.. hef verið ansi nálægt því oft hérna í bænum að það sé keyrt á mig vegna fávitaskaps og athyglisbrests hjá fólki... I hate that people!!
En heyrumst kappi og hafðu það gott... bara rúmur einn og hálfur mánuður í Eurovision... jei :D
Heyrumst...
Veit ekki alveg með djamm, er alveg að kafna í ritgerðum og verkefnum. Býst sömuleiðis ekki við því að fara norður um páskana, vegna þessa. Á eftir að skila einni einstaklingsritgerð og tveim hópritgerðum, tveim verkefnum í Spurningakönnunum, og einni skýrslu til viðbótar eftir páska. Hins vegar verðum við að hittast á laugardeginum og horfa á leikinn ;-P
Já, það eru margir hálfvitar í umferðinni :O ótrúlegt alveg - sáuð þið umfjöllunina í Kastljósinu um Skúla Tyson (eða hvað sem hann heitir nú), á 280km/klst á hjóli á einhverjum einbreiðum vegi þarna fyrir sunnan, þið getið séð þetta hérna http://www.b2.is/?sida=tengill&id=228083 !! Alger djöfusins hálfviti. það er eins gott að við hin "þau heilbrigðu" séum vel vakandi í umferðinni.
Annars þá er allt gott að frétta af okkur Helga, ég skellti meira segja inn bloggi í dag ;)
Kveðja Vordís og líka frá Helga :)
Skrifa ummæli
<< Home