þriðjudagur, apríl 22, 2008

Áttu von á kraftaverki í kvöld?

Sæl öll!

Ég og Arnar skelltum okkur út í smá bílrúnt klukkan tíu í kvöld, og að sjálfsögðu greip ég vélina með. Er ekki kominn með þrífót, en það er næsta mál á dagskrá, ásamt tösku.


Náði þrátt fyrir þetta ágætis myndum, í þessu líka fína veðri. Við fórum víða, kíktum upp í Öskjuhlíð, og tókum ágætis hring í Kópavogi.

Fyrirsögnin á þennan pistil kom þegar ég var staddur við Kópavogskirkju, en þá vatt sér upp að mér göngugarpur, sem spurði um leið, hvort ég ætti von á kraftaverki í kvöld? Ég leit undrandi á manninn, og brosti tilbaka og skyldi bara ekkert hvað hann var að fara. Hann var snar í tilsvörum og sagði að sér þætti skondið að sjá tvo ljósmyndara, á nákvæmlega sama tíma, að mynda kirkjuna í bak og fyrir, hehe góður ;) - og þá sérstaklega í ljósi þess að nokkru fyrir neðan mig var annar einstaklingur að mynda kirkjuna.

Mynd frá framkvæmdum Ístaks við hringtorg í Skeljabrekku í Kópavogi
Og ein að lokum, allir að segja síííís ;)
Kv. Nonni

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ elsku nonni minn og innilega til hamingju með afmælið um daginn.... hefði munað eftir þér fyrr ef ég væri ekki búin að vera veik síðustu daga :D

3:29 e.h., apríl 29, 2008  
Anonymous Nafnlaus said...

hehe, takk fyrir það ;)

10:46 e.h., apríl 29, 2008  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir skemmtunina um helgina.. ef þú ættir myspace þá gætirðu sé snilldarmynd af okkur inn á mínu speisi.. og ég verð að fá myndirnar hjá þér manni.. :)

1:53 e.h., maí 26, 2008  
Anonymous Nafnlaus said...

ég smelli einhverjum fallegum hér inn, núna á næstu dögum ;)

4:15 e.h., maí 26, 2008  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja og hvenær er von á næsta kraftaverkabloggi??

9:39 f.h., júní 06, 2008  
Anonymous Nafnlaus said...

Svona um það bil, um leið og þú byrjar aftur ;)

1:51 e.h., júní 06, 2008  

Skrifa ummæli

<< Home