þriðjudagur, júní 24, 2008

Taka tvö, Iðufell - 21. júní "08

Menn vöknuðu mishressir á laugardeginum, eftir feiknargott djamm frá kvöldinu áður. Planið hafði verið að vakna snemma og taka "tour" um Þingvelli og Gullfoss, og enda síðan á Iðufelli (afmælispartý Elínar). Tveir fyrrnefndu staðirnir duttu út vegna fyrrgreindra ástæðna, en við komumst þó klakklaust á Iðufell, þó svo að kunnátta mín við að rata hafi verið dregin í efa, Helgi hóst, hóst... En allavegana, hér að neðan eru nokkrar myndir, en þær segja víst meira en (mörg) þúsund orð... Stórkostlegt djamm... :)













































































































































Á í einhverju veseni við að hlaða myndunum inn, þannig að ég reyni að setja fleiri inn á morgun. Mikið var þetta ótrúlega gaman, get skoðað þessar myndir, aftur og aftur... ;)

mánudagur, júní 23, 2008

Djamm um síðustu helgi (föstudagur)

Sæl öll

Fékk alveg ótrúlega fallegt og skemmtilegt fólk til mín um síðustu helgi. Helgi kom á föstudagskvöldinu, og það varð úr að ég og Runi skyldum sækja hann út á flugvöll, (það er víst orðið ódýrara að fljúga, en keyra). Eitthvað klikkaði móttökunefndin að okkar hálfu, (EM, hóst hóst...) en það var víst í góðu lagi, því Birgitta og Halla, sáu um að halda honum félagsskap. Það voru auðvitað allir til í að kíkka út um kvöldið (nema Runi), og því var planaður hittingur heima hjá mér. Þetta eru myndirnar úr þeim félagsskap, en við verðum endilega að endurtaka þetta við tækifæri ;)




































Myndirnar úr Iðufellsævintýrinu, koma bráðlega, best að halda ykkur volgum. Kem líka með þær á Húnavökuna, og það er aldrei að vita nema maður klippi saman eitt gott video eða svo ;)

Þangað til næst, luv you all ;)

föstudagur, júní 06, 2008

Lýðræðisflokkurinn...

...er við það að fæðast, skv. þessari frétt.

Hugmyndin er góð, og það verður skemmtilegt fyrir landann ef þetta afl nær að blómstra, það væri óskandi... Ég sé hins vegar margt líkt með Lýðræðisflokknum og Íslandshreyfingunni (svona allavegana á fyrstu metrunum), en vona bara að það rætist úr þessu hjá þeim, þ.e.a.s að menn og konur haldi sannfæringu sinni út í gegn, ólíkt öðrum flokkum sem nú sitja á þingi.

Við skulum allavegana vona að hugmyndin hans Sturlu sé ekki andvana fædd...

Og að öðru...náskyldu - Hvers vegna eru þingmenn, og ráðherrar aldrei látnir sæta ábyrgð, á því sem miður fer? Tökum sem dæmi skipanir ráðherra í hin ýmsu störf í stjórnsýslunni, er eðlilegt að ráðherra geti "einn og óstuddur" tekið ákvörðun um að veita flokks- bróður, eða -systur, embætti sem fjármagnað er með sjóðum almennings? Væri ekki eðlilegra að breiðari hópur fólks kæmi að þessum ráðningum, en fyrir mitt leyti þyrfti þetta að vera hópur fólks sem nyti mikillar virðingar í samfélaginu og um leið almannahylli? Hvað segið þið, einhverjar uppástungur?

Hvers vegna er sá hæfasti aldrei ráðinn?

Bið að heilsa