þriðjudagur, mars 18, 2008

Þá er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn kominn í hús

Jæja, get ekki beðið eftir því að prófa nýju Canon 40D vélina sem ég fjárfesti í, fyrr í dag. Hún er komin heim á Sigló (með flutningi frá Akureyri). Mikið lítur hún vel út ;) Næsta mál á dagskrá er svo að fjárfesta í góðri linsu (24-70mm f 2,8L). Hef þetta ekki lengra í bili ;) - Sjáumst...




fimmtudagur, mars 13, 2008

Ein þvinguð á leiðinni...

Já góðan daginn, hef kannski ekki verið alveg eins duglegur, og ég ætlaði mér, en þessi blöggþörf kemur víst í pörtum. Látum allavegana reyna á hana núna.

Það virðist svo stutt síðan Helgi og Runi kíkktu óvænt suður ;) What a wonderful world, og þvílíkt djamm sem var tekið. Bestu djömmin eru einmitt þegar maður hefur ekki hugmynd hvað gerist næst, þetta var eitt þeirra. Þetta byrjaði allt á sakleysislegu dinner/eurovisionpartý. Elín, Oddur, Runi og Helgi kíkktu í bæinn. Fengum okkur kjúklingabringur, sem voru alveg "supreme", einstaklega góðar, þó svo ég segi sjálfur frá. Horfðum á keppnina og drukkum smá öl með, og smá hvítvín líka. Algjör snilld.

Úrslitin komu á óvart, verð ég að segja... þ.e. þó svo ég hafi haldið með Regínu og Frikka, þá bjóst ég einhvern veginn ekki við því að þau myndu sigra. Var farinn að hallast að Dr. Spock tæki þetta, en sem betur fer, varð það ekki raunin.

Oddur og Elín gáfust upp á okkur og fóru heim eftir að Euro-ið kláraðist (nei segi svona) Elín þurfti að vinna daginn eftir ;) - Ég, Helgi og Runi héldum síðan djamminu áfram og rifjuðum upp nokkra slagara frá því á Króknum. Það má segja að youtube hafi komið að góðum notum, þar sem hvert tónlistaratriðið var töfrað fram, já þetta var spez... þvílík tónlist samt ;) - Eftir nokkur símtöl til Höllu, þá var stefnan sett á partý, og ég veit barasta ekki hvar, veit bara að Helgi hringdi, og það án djóks, svona tíu sinnum í Höllu, til þess að spyrja hana, aftur og aftur. "Við hvaða götu húsið væri" - Við komumst loksins á leiðarenda, þ.e. við sóttum Birgittu (vinkonu Höllu) í húsið í götunni sem ég man ekki hvað heitir, og þaðan fórum við í Icelandair-afmælið, og þar var dvalið vel frameftir nóttu, með alveg fullt, fullt, fullt, af fólki sem gaman var að kynnast. Opinn bar og læti...jebb, and yes indead.

Mig minnir að þegar þarna var komið við sögu, þá ákvað Runi að hringja í Palla, alltaf jafn sætur í sér ;) - (svona svipað og þegar ég hringdi í þig á þjóðhátíðinni hérna í denn). Eftir að hafa dregið Höllu út, seint og um síðir, var stefnan sett niður í bæ, á Nasa, var það ekki annars planið?, tókum bara smá leigubíla rúnt, í leiðinni sko... ;) bara smá sko... fórum þaðan í svona "Húsið á hæðinni" partý, og ég hef barasta ekki neina hugmynd um hvar það var staðsett, það var allavegana, verið að endurinnrétta húsið að innan. Mjög spez innkoma, very interesting, i would say so. Samt rosalega gaman ;) - Eftir dágóða dvöl þar og mikið spjall, tókum við taxa heim. Greyið Halla sem þurfti að mæta í vinnu daginn eftir, mér skilst það hafi verið fjör hjá þeim stöllum, ahhh, það var gott að sofa út, hehe ;) Mér skilst sömuleiðis að Runi hafi slegið í gegn, þegar hann kom heim, var það ekki Elín? ;)

Allavegana, alveg ógleymanlega skemmtilegt djamm, sem verður endurtekið í kringum lokakeppnina í vor. Hef heyrt orðróm um þrefalt djamm þá, sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Annars er bara allt gott að frétta héðan. Er alveg massa ánægður með lífið og tilveruna. Er byrjaður á ritgerðinni, og skemmti mér í vinnunni mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga. Frábær vinnustaður, og frábær starfsandi. Er líka með smá auka áhugamál, sem ég hef ekki mikið nefnt á nafn hér inni. Þið sem ´fílið ekki fótboltann, getið hætt núna, og farið yfir á næstu síðu.

Hef síðustu ár fjallað um meistaraflokksleiki KS/Leifturs, verið með upphitanir, umfjallanir og fleira fréttatengt er snýr að liðinu. Þetta er reyndar fimmta árið, sem ég geri þetta, en áhuginn vex bara og vex, með hverju sumri. Í ár tók ég upp á því að opna nýja síðu á moggablogginu, þar sem sú síða, býður alveg upp á heilmikið af möguleikum, varðandi myndir, tengla, og breiðara aðgengi að umfjöllun um íslenska knattspyrnu. Slóðin er ks-leiftur.blog.is

Sjáumst ;)

mánudagur, mars 10, 2008

Góðar myndir gleymast seint...

Ég hef alltaf haldið mikið upp á þessa, hún er tekin fyrir rétt rúmum tveim árum þegar Helgi, Palli og Runi kíkktu suður í hressilegt djamm. Þvílík mynd og þvílíkur svipur Helgi minn ;)

miðvikudagur, mars 05, 2008

ARSENAL, ARSENAL, ARSENAL

Ég er ekki vanur að tala upp fótbolta hérna, en ég verð bara að gera undantekningu í kvöld. Mér líður eins og mínir menn hafi orðið Evrópumeistarar, stórkostlegur leikur, hreint út sagt, og 0-2 sigur á San Siro, staðreynd. Ég grét í fyrri hálfleik, þegar brotið var á Hleb, og hann fékk gult spjald fyrir leikaraskap, var víst orðinn eitthvað tæpur... (rétt eins og dómarinn) og það bætti ekki úr skák þegar Fabregas smellti tuðrunni í slánna, andartaki síðar...


Seinni hálfleikurinn var síðan alveg svakalegur, mér leið eins og í spennutreyju... Milan líklegir til þess að gera sig líklega, allt þangað til Fabregas, ákvað að skjóta af 27 metra færi, beint í bláhornið!!! (Smellið á myndina til þess að sjá svipmyndir úr leiknum).




Það að Adebayor skildi síðan bæta öðru við, rétt undir lokin, gerði þetta bara enn sætara ;)