mánudagur, apríl 23, 2007

Sleikti sumarið

Sæl öll!!!

Ætlaði að smella þessari færslu hingað inn um síðustu helgi, en það fórst eitthvað fyrir mér. Héðan er að sjálfsögðu allt gott að frétta, skólinn að klárast og prófin að byrja. Að ógleymdum kosningunum framundan. Förum ekkert nánar út í þá sálma að sinni. Hins vegar tókum við systkinin smá rúnt á Sumardeginum fyrsta, frá Hallgrímskirkju, niður eftir Skólavörðustígnum, Laugaveginum, Austurstræti og að Ingólfstorgi.

Ég tók myndavélina með, og þar sem þetta eru slagfærar myndir, þá leyfi ég þeim að fylgja með ;) Veðrið var bara nokkuð gott, þó svo að það hafi verið ansi napurt á þeim svæðum sem sólin náði ekki til. Mikill fjöldi fólks var í bænum, og flestir eflaust að fylgjast með húsunum sem höfðu brunnið daginn áður. Hreint og beint nöturleg sjón að sjá aðkomuna, eins og sjá má á myndunum hér að neðan.

Eftir að hafa staldrað við í nokkra stund og hitt m.a. Palla Ágústu fyrir utan Hressó, var haldið áfram og niður að Ingólfstorgi. Þar var splæst í Bragðaref, sest niður og slappað af. Þessa mynd tók ég einmitt þar, á meðan ég dásamaðist af hjólinu, sem var by the way, "algjör klassi". Eftir dálitla pásu var síðan haldið áfram og tilbaka niður í Lækjargötu, upp að MR og síðan með nokkrum krókaleiðum aftur upp að Skólavörðustígnum. Við Hallgrímskirkjuna stoppuðum við í nokkra stund. Magnað mannvirki og þá sérstaklega þegar inn var komið, fórum þó ekki í turninn, en það er næsta mission.

Læt þetta gott í bili, en hugsa þó að ég komi með svakalega færslu eftir djammdag ársins, eins og ég kýs að kall´ann.






Með kv. Nonni

þriðjudagur, apríl 17, 2007

Þetta lag kallar á færslu,,,

Sæl öll

Ég verð víst að éta hattinn minn, og ástæðan fyrir því er að Frakkar senda nú í ár, lag sem ég skilgreini "fyndið", en ekki eitthvað drepleiðinlegt, líkt og undanfarin ár. Tek því aftur orð mín sem ég viðhafði á síðunni hans Palla um fyrirkomulag keppninnar:
„Að Frakkar kæmust þá kannski ekki áfram á hverju ári, en þeir hafa verið með sama lagið frá 1970.“

Hér má sjá framlagið: Les Fatals Picards - L'amour a la francaise

Úti á lífinu, um næstu,
kv. Nonni